Mér finnst Kate Middleton vera svo smart. Hún er yfirleitt í kvenlegum fötum, er elegant og fáguð með geislandi bros.
Það er kannski engin furða að mér þykir hún vera smart þar sem ég er algjör sökker fyrir fallegum kjólum!
Sjáðu alla þessa fallegu kjóla!
Myndir fengnar að láni frá The Berry
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.