Nú er sko farið að kólna í veðri og tími til kominn að draga fram kápurnar og úlpurnar…
…Hlýjar kápur í öllum stærðum, gerðum og litum sáust á tískupöllum þegar hönnuðir á borð við Alexander McQueen, Balenciaga, Chloé, Gucci og Jil Sander sýndu haustlínur sínar. Hér fyrir neðan er myndaalbúm troðfullt af fallegum og girnilegum kápum úr haustlínum mismunandi hönnuða.
Og veturinn má koma!
Myndir fengnar að láni frá Style.com.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.