Kanye West frumsýndi fatalínu sína í samstarfi við Adidas í gærkvöldi á tískuvikunni í New York.
Áhugaverð sýning sú, bæði hvað varðar gestina og fatnaðinn sem fyrirsæturnar klæddust!
Fremsti bekkurinn var þétt setinn stórum stjörnum. Rihanna, Cassie, Diddy, Jay Z, Beyoncé og að lokum auðvita Kim Kardashian West. Ég viðurkenni að þessar stjörnur sem voru mættar og dressin þeirra vöktu meiri athygli mína en línan sjálf.
Anna Wintour lét sig að sjálfsögðu ekki heldur vanta. North West bættist svo við áhorfendahópinn og gólaði hástöfum!
Ég ætla að láta það eiga sig að dæma klæðnaðinn sem birtist á pallinum í gær þar sem ég get ómögulega farið fögrum orðum um hann!
Hér sjáið þið nokkur brot úr línunni:
Stæling á skotheldu vesti yfir níþröngan samfesting – það gæti verið eitthvað já
Rifin peysa – Tískan samkvæmt West
Peysan ofan í sokkabuxurnar, hnésokkar yfir og stígvél og þú ert good to go!
Nude lúkk og flíspeysan um mittið
Er fóðrið innan úr gamla jakkanum allveg að gefa sig af ofnotkun?
Það er tískan!
Kylie Jennar kom fyrir í tískusýningunni og fetar því í fótspor systir sinnar, Kendal. Eitt langar mig þó að benda Kim á, að fá sér annan stílista en eiginmann sinn. Bæði fyrir sig og dóttur sína!
Meira af hönnun Kanye West á tískupallana?
Ég segi pass, hvað með þig?
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com