Jimmy Choo hefur aldrei klikkað þegar það kemur að flottum og pæjulegum skóm sem bókstaflega allar konur langar til að eiga.
Stjörnurnar í Hollywood hafa m.a. dásamað merkið sem setur það í sama flokk og Manolo Blahnik og Christian Louboutin.
Í nýju línunni má sjá fjölbreytt úrval, töff hönnun og fallega liti ásamt því að skórnir hafa það orð á sér að einstaklega gott sé að ganga á þeim. Í litapallettunni er drapplitaður mikið notaður ásamt hlébarðamynstri, silfurlituðum og svörtum. Svörtu blúnduskórnir eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér og ég væri gjarnan til í að eignast eitt svoleiðis par!
Tískudrósir á öllum aldri geta valið úr línunni það sem þeim finnst flottast, hvort sem það eru ökklastígvel, klassískir pinnahælar eða himinháir “platforms”.
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com