Ég rakst á ótrúlega skemmtilega bloggsíðu sem ung Japönsk stelpa heldur úti.
Hún er GJÖRSAMLEGA með Jeffrey Campbell skó á heilanum og á ólýsanlegt magn af Jeffrey Campbell skóm. Skóskápurinn hennar er eitt það fallegasta sem ég hef séð! úúúúfff…Við skulum ekki gleyma að eitt par af Jeffrey Campbell skóm kosta á bilinu 20.-35.000 kr!
Hún bloggar bæði um skóna sína og önnur föt, skó sem hana langar í og ýmislegt annað. Ég get gjörsamlega gleymt mér á þessu bloggi.
Skoða blogg HÉR
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.