Nú er sumarið komið á meginlandinu og fólk komið í ljósari og litríkari föt.
Það er víða um Evrópu fólk að tapa sér yfir konunglegu brúðkaupi Vilhjálms og Kötu og hvort sem það er innblástur frá því eða eitthvað annað þá er hvítur mjög áberandi litur í sumartískunni.
Hvítt var aðal liturinn á pöllunum hjá Dolce & Gabbana, Michael Kors og Chloé og H&M var ekki lengi að grípa trendið og framleiða flotta hvíta sumarlínu!
Hvítur er litur hreinleikans og glæsilegur ef rétt er farið með hann, hér er samantekt á nokkrum vel heppnuðum hvítum flíkum:
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.