Váá! Þegar ég kíkti inn á NET-A-PORTER vefverslunina þá blasti þessi ‘gooordjöss‘ myndaþáttur við mér…
…Myndaþátturinn heitir Let’s Dance og er troðfullur af glitrandi, glansandi og æðislegum flíkum frá meðal annars Sonia Rykiel, Dolce & Gabbana, Miu Miu, Missoni og Balmain. Sem sagt algjör lúxus sprengja.
Þessi myndaþáttur er ‘pörfekt’ að mínu mati og fær stílistinn, Tracy Taylor, tíu plús í einkunn frá mér. Svo er hárið og förðunin ‘brilljant’ líka!
Úff, nú langar manni bara í áramótapartí….eeen við verðum víst að bíða aðeins ;).
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.