Kannski er það veðrið á Íslandi, snjórinn og ringingin eða veikindin sem eru búin að yfirtaka fólkið í landinu en einfalt og þægilegt er tískutrendið í dag.
Kósýbuxur, strigaskór, frakkar og einfaldar litasamsetningar er það eina sem þú þarft. Ég er alltaf hrifin af því að blanda saman ólíkum stílum og hef ég því virkilega gaman af þessari tískubylgju. Stundum þarf þetta ekki að vera flókið. Hér eru nokkrar góðar hugmyndir um þægilegt og einfalt. Ég væri til í að klæðast þessu öllu.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.