Nú þegar jólin nálgast eru eflaust margar dömur farnar að leiða hugann að jóla-, og jafnvel áramótadressinu…
…Glimmer, tulle-efni, pallíettur og rauðar varir er eitthvað sem minnir mig alltaf á hátíðarnar. Hér fyrir neðan eru nokkrar fallegar og girnilegar flíkur og fylgihlutir sem henta vel í jóladressið.
Það fer örugglega enginn í jólaköttinn í svona fíneríi!
__________________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.