Jimmy Choo er meistari skógerðar að mínu mati.
Þvílík fegurð! Að fara í gegnum nýjustu línuna hans er eins og hið besta laugardagsnammi…bara betra!
Nú er hann búinn að opna búð fyrir herralínu sína í London. Búðin er í Burlington Arcade og er á tveimur hæðum.
Ég er algjör skófíkill og gæti alveg hugsað mér nýja skó í hverjum mánuði. Einnig finnst mér mjög mikilvægt að betri helmingurinn minn sé vel skóaður. Enda er ekkert flottara en að sjá karlmenn í flottum skóm. Hér er hægt að sjá nokkur pör af nýjustu línunni hans Jimmy. Strigaskórnir eru alveg ótrúlega flottir, léttir, smart og bara mega töffaralegir!
Svo er líka smá konfektmoli fyrir okkur fagurkerana úr sumarlínunni hans Jimmy…
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.