Hermannatískan hefur verið áberandi í langan tíma en nú stendur hún sem hæðst!
Khaki liturinn sést allstaðar og á öllum flíkum! – Peysur, jakkar, bolir, kjólar, pils…ALLT! Bæði fyrir stelpur og stráka. Army jakkar eru alltaf klassískir og passa við allt. Við eigum örugglega flestar hermannaföt einhverstaðar í kössum. Núna er rétti tíminn til að grafa það upp!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.