Eydís skrifaði í gær pistil um 10 flottustu kjólana á Golden Globes verðlaunahátíðinni en það voru nokkur trend áberandi á rauða dreglinum.
Það virtust margar konur vera óhræddar við að fara aðra leiðir en vanalega þetta árið og sumar stigu feilspor á meðan aðrar voru stórglæsilegar. Kjóllinn hennar Jennifer Lawrence hefur til dæmis fengið mikla neikvæða gagnrýni og mikið hefur verið skrifað um hann á samskiptamiðlum en honum hefur meðal annars verið líkt við ruslapoka með böndum!
Óléttu dömurnar
Kerry Washington, Olivia Wilde og Drew Barrymore eru óléttar og tekið var eftir þeim á rauða dreglinum. Þær leyfðu kúlunum að njóta sín og voru alls ekki feimnar gera kviðinn meira áberandi.
Kampavínsgyðjurnar
“Nude” kjólar sem glönsuðu þóttu afar smart í gær. Hér eru þær Naomi Watts, Robin Wright og Zooey Dechanel allar í þannig kjólum en gagnrýnendum fannst kjóllinn hennar Zooey pínu “kellingalegur” fyrir hennar aldur.
Tveggja tóna skvísur
Tveggja tóna kjólar sáust einnig í gærkvöldi, hér eru Julie Bowen, Taylor Swift og Julia Roberts í þannig kjólum en kjóllinn hennar Juliu þótti ekki smart, mér finnst hinsvegar hinir kjólarnir afar flottir.
Sjóðandi heitar í heitum kóral
Heitur kóraltónn sló í gegn! Persónulega finnst mér þessi litur æðislegur! Emma Roberts, Lupita Nyong’o og Julia Louis-Dreyfus voru sjúklega sætar í þessum lit í gær, Emma mætti meira að segja í buxum innanundir sinn kjól, hrikalega töff!
Silfurstjörnurnar
Silfurkjólar eru alltaf flottir við verðlaunaafhendingar, hér eru Mila Kunis, Kate Beckinsale og Kate Mara guðdómlega flottar í silfurlituðum kjólum. Kate Beckinsale var óaðfinnanleg að mínu mati, þvílík gyðja á rauða dreglinum!
Of mikið skreyttar
Ofur skreyttir kjólar. Hér eru Drew Barrymore og Zoe Saldana í kjólum sem eru eiginlega út um allt og hrikalega mikið skreyttirog lafandi böndin hjá Zoe, æji ég veit ekki alveg með þau.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig