Hún er fögur… hún er flott og algjört ævintýri fyrir augað.
Frá smiðju Alexander McQueen fyrir haustið 2013 eru margar ómótstæðilegar flíkur eins og vanalega þegar þau kynna nýjar línur.
Þarna sjáum við feldi og leður útsett í Viktoríustílnum í bland við smá goth og framandi glæsileika.
Hvíti og svarti liturinn eru mjög áberandi í ár frá þessu tískuhúsi sem öðrum, með dassi af sterkum lit inn á milli til að hressa all verulega upp á stílinn.
Fyrir töffarana og þær sem vilja föt með risa karakter!
_________________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.