Nú er uppáhalds árstíminn minn að renna upp. Þegar haust og vetrarlínur hönnuða renna inn í búðir.
Hugo Boss er með dásamlega línu þetta haustið eins og ávalt. Innblásturinn sóttu þeir í nútíma dans og leikhús. Útkoman er hreint út sagt bjútí bjútí! Hreinir sterkir litir. Kvenlegar línur í kjólum og klassískt útlit.
Strákarnir fá líka sinn skammt af fegurð. En þar er mikið um staka jakka í sterkum bláum litum, eins koma brúnir leðurjakkar sterkir inn.
Þessar flíkur eru hreinlega dásamlegir konfektmolar!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.