Það er módelið Karlie Kloss sem að sýnir hér haust 2011 línu H&M, rennislétt hárið skipt í miðju og dökkar varir fara henni vel…
…H&M klikkar seint en þessi haustlína er einmitt mjög flott. Hún inniheldur mikið af kósí og skemmtilegum flíkum svo sem prjónapeysum og ullarkápum. Camel, nude og brúnir litir eru hér áberandi, mjög haustlegt og fallegt.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.