Hausttískan í HM verður fjölbreytt að vanda en hér eru nokkrar myndir af því sem koma skal í eftirlætisverslun íslendingsins sem bregður sér af landi til að versla.
Flestar þessar vörur koma í hillurnar í dag en hér má m.a. sjá útvíðar gallabuxur sem við héldum að væri aðeins lengri bið eftir. Þetta eru þó frábærar fréttir fyrir lágvaxnar og mjaðmabreiðar konur því engar gallabuxur fara þeim eins vel og í þessu sniði. Þá verður bara að muna að láta skálmina ná niður fyrir hæl.
Litirnir eru mjög mikið “neutral”, ferskju og “beige” enda stemmningin sótt til 70’s áranna að miklu leiti. Köflóttar buxur og brúnir leðurskór og töskur… Smart og fágaður stíll og sumt alveg beisikk. Flott í skólann og/eða vinnuna.
Kíktu hér á gallabuxurnar og eitthvað fínt fyrir þig og hann:
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.