Það var árið 2004 sem þrír einstaklingar, Kelly Davies, Maya Clemmensen og Scott Davies, stofnuðu þetta flotta merki, Maurie and Eve, en merkið heitir í höfuðið á ömmu og afa þeirra systkina Kelly og Davis…
…Ég rakst á þessar myndir af nýju haust-línunni frá Maurie and Eve sem sýnir hvað koma skal. Karrýgulur litur, þykkar og víðar prjónapeysur í bland við silki-flíkur.
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að skoða nánar nýjustu línuna frá þessu ástralska merki sem fæst í yfir 80 verslunum um allan heim.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.