Í gær skrifuðum við um töskur sem voru að koma í nokkrar sérvaldar verslanir Prada. Ótrúleg fegurð!
Og nú er það haust og vetrarlínan frá þessari ítölsku dásemd. Eins og við nefndum í gær eru allskonar sexý áhrif í gangi hjá Prada næsta haust. Heimstyrjaldir í bland við undirföt, drottningar og asíska strauma. Ótrúleg póst módernísk leikgleði! Einskonar rímix af áhrifum síðustu aldar.
En eins og vanalega þegar tískan er annars vegar er óþarfi að segja of mikið um hlutina. Borgar sig að láta myndirnar tala sínu máli. Við gefum haustinu hjá Prada fjórar stjörnur af fimm þó sumt sem við sjáum þarna sprengi alla skala… 👌🏼
[usr 4]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.