Nú hafa Dolce & Gabbana, Oscar del la Renta og Marni bæst í hóp tískukónganna með barnalínur sínar.
Útkoman er hreint dásamleg eins og við mátti búast. Fötin eru ótrúlega sæt, bæði töffaraleg fyrir strákana og extra pæjuleg fyrir stelpurnar. Gullkjólar, silkikjólar í bland við flottar kápur fyrir stelpurnar.
Fyrir strákana eru það leðurjakkar, rifnar gallabuxur, strigaskór við jakkaföt og það besta.. jakkaföt með sniði.
Ótrúlega oft sér maður jakkaföt fyrir gaura sem eru með nákvæmlega engu sniði svo þeir líta út eins og litlir gamlir kallar. (já ég er stráka mamma og á oft erfitt með að finna falleg strákaföt).
Svo þessar myndir lofa góðu, því þá er stutt í það að “ódýru” hönnuðirnir fylgi í sömu skóför og hátískurisarnir…
Ég tók saman nokkrar myndir frá þeim þekktustu, Armani, Gucci, Dolce & Gabbana, Marc Jacobs og Versace. Svona lítur veturinn 2012-2013 út hjá þeim!
Gullfalleg og töffaraleg föt fyrir flotta krakka!
______________________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.