Ég hef í gegnum árin haft dálæti á auglýsingunum frá Guess vörumerkinu. Ég elska hvernig þeim hefur tekist að halda sama stílnum í gegnum árin, sem að mínu mati gerir merkið tímalaust og klassískt.
Förðunin, hárið og 50′ stílinn í auglýsingunum heillar mikið og gefur mér innblástur. Fallegur eyeliner, smoky augnförðun, mótaðar varir og mikið hár einkenna meðal annars auglýsingarnar. Hér koma nokkrar flottar:
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=EmeugsZih6A[/youtube]
Margar af flottustu fyrirsætum samtímans hafa verið í samstarfi við fyrirtækið eins og Eva Herzigova, Claudia Schiffer, Anna Nicole Smith, Adriana Lima og fleiri.
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com