Það er líflegt og skemmtilegt að fylgjast með fólki á götum úti þegar tískuvikur fara fram.
Tískudívur sjást þá á götum úti á milli tískusýninga og á eftir þeim fylgja ljósmyndarar til að mynda þær í bak og fyrir, svo við sem heima sitjum fáum nú að njóta líka.
Hér eru myndir frá tískuvikunni í Kaupmannahöfn, teknar af Adam Katz Sinding…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com