Það er eitthvað við haustið og kuldann sem lætur mann vilja dressa sig aðeins meira ‘glasúröss’ upp: feldur, dökkir varalitir og meira skart…
…Og hvað er segir glamúr meira heldur en pallíettur? Fallegar og glitrandi pallíettuflíkur lífga klárlega upp á skammdegið og gefa öllu smá auka ‘diskó’ í kuldanum…ekki veitir af!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.