Árlega er kvikmyndahátíð haldin í borginni Cannes í Frakklandi. Þar sjást allar skærustu stjörnur kvikmyndaheimsins. Í ár er hátíðin haldin í 67. skiptið.
Í gær var opnunarteiti hátíðarinnar haldið og mættu þar stjörnur á borð við Nicole Kidman, Blake Lively og Jane Fonda.
Nicole Kidman í Armani Privé kjól
Zoe Saldana í kjól úr smiðju Victoriu Beckham
Blake Lively klæddist Gucci Premiére kjól
Laetitia Casta í Dior Haute Couture kjól
Karlie Kloss glæsileg í kjól frá Valentino
Kendall Jenner í Chanel
Sjálf Jane Fonda mætt íklædd Elie Saab kjól
Hátíðin stendur yfir til 25. maí svo enn eiga eftir að birtast fjöldinn allur af prúðbúnum stjörnum á rauða dreglinum.
Sjáðu fleiri myndir hér að neðan…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com