Þegar kemur að tískubransanum og ofurfyrirsætum þá hefur hún Gisele Bündchen vinninginn að mínu mati.
Konan er afar eftirsótt fyrirsæta og hún hefur prýtt óteljandi forsíður tískutímarita, Gisele er einnig ómissandi á tískupöllunum og ein hæstlaunaðasta ofurfyrirsætan í heiminum.
Þessar myndir voru teknar á tískupallinum og baksviðs fyrir sýningu Givenchy og heilluðu myndirnar af Gisele.
Hún er víst afar jarðbundin týpa og hress og ég er ekki frá því að það skili sér á myndunum af henni.
Givenchy sýndi vor og sumarlínu sína fyrir 2012 á dögunum en hér má m.a. sjá metallic stemmninguna sem verður ríkjandi í vetur. Flottar dragtir og þröng pils.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.