Nýjasta sólgleraugunalína snillingsins Karen Walker er mega framtíðaleg, litrík og pínu geimveruleg að mínu mati…
…Skærlitað plast, öðruvísi form og aflitaðar fyrirsætur á hvítum bakgrunn kemur allt sjúklega vel út.
Karen Walker bregst seint og kemur alltaf með eitthvað ferskt og spennandi. Væri ekki leiðinlegt að eignast eitt stykki af þessum speisuðu framtíðar gleraugum og ekki skemmir fyrir að Karen elskar UV vörn og leggur mikið upp úr að gleraugun verji augun vel og vandlega.
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að skoða betur:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.