Nú á dögunum sýndi tónlistamaðurinn Kanye West sýna fyrstu kvenfatalínu á tískuvikunni í París…
…Pínu spes að hann sé eitthvað að troða sér inn í tískubransann eeen svona er þetta víst. Eins og við mátti búast frá Kanye þá er lúxusinn í fyrirrúmi. Leður, loðfeldur, pallíettur og flauel var áberandi þegar fyrirsæturnar löbbuðu út pallinn. Í lokin kom svo Kanye sjálfur fram og hneigði sig fyrir framan alla tískuspekúlantana en hann sagði að það hefði verið miklu erfiðara heldur en að koma fram á sviði á tónleikum.
Er eitthvað varið í þetta hjá honum? Dæmi hver fyrir sig…
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.