Fyrir stuttu birtist færsla HÉR sem fjallaði um Burberry kápurnar guðdómlegu…
…Það eru margir sem hugsa einmitt um kápur þegar minnst er á Burberry, en fallegar aðsniðnar kápur hafa hálfpartinn orðið þeirra ‘trademark’ á seinni árum. Og vor/sumar 2013 línan veldur ekki vonbrigðum…síður en svo! Fullkomnar kápur í öllum regnbogans litum streymdu niður tískupallinn þegar línan var frumsýnd, og málm-áferðin var áberandi. Draumur!
Kíktu á myndirnar fyrir neðan til að sjá fegurðina og alla fallegu fylgihlutina.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.