Nú er tískuvikan í París ný afstaðin og auðvitað var allt morandi af frægu fólki bæði á helstu sýningum vikunnar og á götum Parísarborgar…
Uma Thurman mætti á Chanel, Liv Tyler fór á Givenchy og Salma Hayek lét sjá sig á YSL sýnigunni svo eitthvað sé nefnt. Það er alltaf gaman að sjá hvað fræga fólkið velur (eða lætur velja á sig) fyrir viðburði eins og tískusýningar.
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að skoða þær nánar…
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.