Marie Claire South Africa hefur gerst svo djarft að setja Hertogaynjuna Kate Middleton á forsíðu sína og hvergi hefur verið sparað í notkun ‘fótósjopp’.
Kate hefur ekki enn samþykkt að sitja fyrir í tísku – eða glanstímaritum og því er óhætt að segja að þetta er umdeild ákvörðun ritstýru blaðsins Aspasia Karras sem útskýrir þessa ákvörðun þannig að Kate sé án nokkurs vafa nýjasta “style icon” heimsins og ákvað hún því að gera blað tileinkað aðdáendum hertogaynjunnar.
Hvort sem þetta er tileinkað aðdáendum Kate eða ekki þá verður að segjast að þetta sé varasöm ákvörðun hjá ritstýrunni sem á án nokkurs vafa eftir að fá blendin viðbrögð.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.