SHOPNASTYGAL.COM er ein flottasta vefverslunin í dag. Föt á góðu verði og ÖLL tú dæ for flott.
Ég þori varla að fara inná þessu síðu í ótta við að hringja í bankann til að hækka vísa heimildina.
Allt er voða sumarlegt á síðunni þessa dagana, kjólar, litir og sólgleraugu. JÁ TAKK!
Mig langar í þetta allt! Guli kjóllinn er smá uppáhaldi, sérstaklega með rauðan varalit. Mjög flott og sumarlegt lúkk.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.