Reykjavík Fashion Festival fór fram í dag í fjórða sinn við mikil hátíðarhöld í fallegu Hörpunni okkar.
Veðrið var yndislegt. Stemningin æði og allir hressir og fab. Fólkið skartaði sínu fínasta og allir með puttann á púlsinum , meira að segja börnin sem sum hver voru alveg með’etta.
Kíktu hér á myndir sem ég tók í Hörpunni í gær á þessari skemmtilegu hátíð.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.