HOLLYWOOD: Aðfaranótt mánudagsins síðasta voru Golden Globe verðlaunin afhent og Vogue er ekki lengi að velja best klæddu konurnar að þeirra mati, 10 konur urðu fyrir valinu og hægt er að kjósa flottasta kjólinn á Vogue síðunni.
Ég ætla að reyna vera jákvæð en oftast finnast mér stjörnurnar skelfilega klæddar á þessarri hátíð og ég skil ekki alveg hversvegna þær eru allar svona litlausar þetta árið? Af þessum 10 finnst mér Rhea Durham konan hans Mark Wahlberg flottust.
Hver finnst ykkur flottust?
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.