Ég fer ekki frá því að í Kiosk eru samankomnir flottustu tískuhönnuðir okkar lands.
Það er gengið að því vísu að þegar ég kem þar inn mun ég sjá eitthvað svo fínt að ég verð að eignast það! Ég er því himinlifandi að þessi verslun sé LOKSINS komin á netið. Í sameignarversluninni Kiosk Reykjavík má finna vörur eftir Eygló, Hlín Reykdal, Sævar Markús, Helicopter, Hildi Yeoman, Kyrja, Milla Snorrason, Sonja Bent og Kristjana S. Williams.
Kíkið á vefverslunina og verið viss um að fara ekki í jólaköttinn!
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.