Leikkonan Michelle Williams hefur hlotið mikið lof undanfarið fyrir flottan stíl og frumlegan klæðaburð…
…Michelle Williams var á allra vörum eftir að hún fékk sér mjög flotta klippingu í október á seinasta ári, en hún aflitaði sig líka sem kom mjög vel út. Michelle er reyndar að leika Marilyn Monroe í myndinni My Week with Marilyn sem gæti útskýrt þessa drastísku breytingu.
Michelle er núna á fullu í mömmuhlutvekinu en hún á eina dóttur með leikaranum Heath Ledger sem lést 2008. Litla stelpan heitir Matilda er er frekar lík mömmu sinni, alltaf mjög pæjuleg til fara.
Michelle hefur verið nokkuð djörf í fatavali og óhrædd við að blanda saman munstrum og litum.
Hér fyrir neðan er smá albúm með myndum af Michelle í sínu fínasta pússi.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.