Þegar ég heyrði fyrst lag með Florence and the Machine féll ég gjörsamlega fyrir þessarri mögnuðu rödd.
Ekki minnkaði aðdáun mín á Florence þegar ég sá myndband með henni, hún er sérstök, kraftmikil og hæfileikarík kona með einstakan smekk.
Mér finnst Florence Welch með eldrauða hárið sitt og kraftmikla sviðsframkomu vera ein flottasta söngkonan og tísku-íkonið í dag.
Hér eru myndir af henni frá ýmsum uppákomum: (Mig langar í ÖLL þessi föt!)
Og auðvitað verðum við að láta eitt myndband með Florence and the Machine fljóta með:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=iWOyfLBYtuU&feature=related[/youtube]Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.