Gaddar hafa verið mikið í tísku uppá síðkastið. Áberandi í bæði flíkum og fylgihlutum.
Gaddaskórnir frá Jeffrey Campbell, kragar á skyrtum, leðurjakkar þaktir göddum, sakleysislegir kjólar, hálsmen, hringir og eyrnalokkar. Flíkur skreyttar göddum eru mjög heitar í dag – þessi stíll er harður en lífgar mjög skemmtilega uppá til dæmis saklausan sumarkjól eða skyrtukraga…. sjáðu:
Viktoría Hinriksdóttir er yngsta pjattrófan. Fædd í ljónsmerkinu árið 1994. Hefur áhuga á öllu sem tengist hreyfingu og íþróttum, mataræði, tísku og öðru sem gerir lífið fallegra, betra og skemmtilegra.