Með hækkandi sól og betra veðri eru línurnar í tískunni farnar að skýrast fyrir vorið.
Ég hef tekið eftir því á hinum ýmsu samskiptasíðum, tískusíðum og jafnvel sölusíðum að fléttuð hárbönd eru eitthvað sem koma skal um næstu misseri. Fléttuböndin eru til í hinum ýmsu útgáfum og litirnir eru jafn fjölbreyttir eins og böndin eru mörg.
Þegar ég sá svona bönd á Facebook fór ég strax á stúfana og spurði hvar ég gæti fengið svona falleg hárbönd sem voru úr flauel, svörin voru komin á núll einni frá nokkrum vinkonum mínum og eftir að hafa skoðað fjölmargar síður ásamt því að hitta eina skutlu með slíkt band ákvað ég að fá mér hárband frá Level.
Fjólublátt band varð fyrir valinu og ég er ekki frá því að sá litur fari vel við ljósu lokkana og bláu augun mín. Level býður upp á mikið úrval af þessum fléttuböndum og bandið kostar í kringum 4.500.
Hér getur þú síðan séð nokkar myndir af fléttuböndum sem ég fann víðsvegar á netinu og hjá versluninni Level.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig