Flauel er nýjasta æðið í tískunni um þessar mundir – mér til mikillar ánægju. Hef lengi verið hrifin af flauelsefni.
Einn af mínum uppáhalds kjólum er úr eldrauðu velvet efni.
Fékk hann á þúsund krónur fyrir rúmum fjórum árum og hef notað hann endalaust síðan.
Mig er búið að langa í fleiri flauelskjóla síðan og nú er loksins komið úrval!
Dökkir litir eru sérstaklega áberandi. Svart, vínrautt, fjólublátt og navy.
…
_______________________________________________________
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.