Ég er á leiðinni á Hróarskeldu í ár. Þriðja árið í röð! – Það er allt svo yndislegt við tónlistarhátíðir. Tónlistin, fólkið, tískan, stemmingin, hláturinn og gúmmístígvélin.
Auðvitað skipta fötin máli líka og algjör óþarfi að vera púkaleg á tónlistarhátíðinni. Hér eru nokkrar skemmtilegar hugmyndir að því sem er hægt að setja niður í ferðatöskuna fyrir hátíðina…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.