The Coveted er skemmtileg síða þar sem við fáum að skyggnast inní fataskápa hjá tískudrottningum/kóngum.
Mér finnst ótrúlega gaman að fá að sjá hvað aðrir eiga og láta mig dreyma um að eignast hlutina. Skemmtilegustu blogg sem ég les eru bloggarar sem eru duglegir að setja inn “átfitt”. Mörgum finnst sjálfhverft að setja inn svoleiðis myndir en ég er alls ekki á sama máli.
Sumir fataskápar eru hreinlega eins og listasöfn. Svo mikið af fallegum fjarsjóðum og yndislegum flíkum. Fólkið sem sýnir fötin sín á þessari síðu eru flest að vinna við tísku, t.d hjá VOGUE eða svipuðum blöðum.
Nokkrar myndir af síðunni:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.