Það bíða allir tískufíklar heims eftir septemberútgáfu Vogue en það tölublað markar nýtt ár í tískuiðnaðinum.
Lady Gaga prýddi forsíðu septemberútgáfu þessa árs með glæsibrag en það tímarit er númer 120 í röðinni og því afmælisrit.
Margar af frægustu Hollywood leikkonum heims hafa verið forsíðustúlkur tímaritsins og árið 2007 var Sienna Miller á forsíðu stærstu septemberútgáfu blaðsins sem var 2,5 kíló að þyngd!
Anna Wintour ritstjóri bandaríska Vogue leggur allt í sölurnar fyrir septemberútgáfuna og er margra mánaða vinna á bakvið það tölublað, það sem er heitt í þessu tölublaði verður allsráðandi í tískunni þennan vetur.
Hér að neðan má síðan sjá þær tíu stúlkur sem hafa verið forsíðustúlkur septemberútgáfu blaðsins síðastliðin tíu ár:
___________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig