Ég er alveg hreint að elska Vogue þessa dagana. Mér finnst eins og tískurisinn geti ekki gert neitt rangt.
Nú var Vogue að taka saman sjálfsmyndir fyrirsæta í heitustu gallaflíkunum um þessar mundir. Algjör fegurð. Fallegar konur í fallegum flíkum í fallegu umhverfi.
Gallasmekkbuxur. Það þarf ansi mikið sjálfstraust til að klæðast slíkum.
Þessum gallakjól gæti ég vel hugsað mér að klæðast.
Nude skór, smekkbuxur, blómaskyrta og rauðar neglur = sjálfstraust.
Hlaupaskór við mikið uppbrettar gallabuxur.
Mjög látlausar svartar gallabuxur við munstraðan jakka og afgerandi tösku.
Stuttur svartur leðurjakki, blá skyrta og svartar gallabuxur. Lúkkið toppað með svörtum hælum og úfnu sexy hári.
Hér er afslöppun og vor í lofti. Ljósar örlítið útvíðar gallabuxur með háu mitti passa vel í þessu umhverfi.
Ekki beint minn stíll en flottur engu að síður fyrir þær sem komast upp með hann.
Algjörlega æðislegur retro stíll. Gallapils með a-sniði verða mjög vinsæl í vor-og sumar.
Gallastuttermakjóll tekinn saman í mittið með kaðlabelti.
Þessar klassísku niðurmjóu gallabuxur passa við allt.
Klassískar niðurmjóar gallabuxur við aðsniðinn tweet jakka.
Æðislegur laus gallasamfestingu fyrir þær sem hafa hæðina með sér. Hvítir taustrigaskór við.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.