Stella McCartney er þekkt fyrir fallegu hönnunina sína.
Línan hennar fyrir haustið 2012 er mjög falleg. Himinblái liturinn mjög ríkjandi bæði í kjólum, buxum, jökkum og sem millilitur. Yndislegt alveg því þessi blái litur er svo fallegur.
Þykkar peysur við buxur og pils eru líka í línunni hjá henni.
Mér finnst hönnun McCartney svo klæðileg og hentar fyrir konur af öllum stærðum og gerðum. Fallegir litir og súper flott snið!
Mjög falleg lína frá Stellu McCartney
_________________________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.