Sumarið, eða þó vorið, hlýtur að fara að bresta á á Íslandi. Hjá mér er sumarveðrið heldur betur komið og skófatnaðurinn því orðinn léttur og þægilegur, eins og ég vil hafa það!
Espadrillur eru mitt nýja uppáhald og ég mæli með að minnsta kosti einum slíkum fyrir sumarið. Chanel espadrillur er draumurinn en þangað til sá draumur rætist er hægt að finna þær mun ódýrari hér og þar, eins og þessar hér:
Primark, 5 EUR. Kjarakaup það!
Ég tók saman nokkrar sætar espadrillur:
1. Valentino
2. Chanel – draumurinn!
3. Pieces (kannski fáanlegar í VeroModa eða Vila?)
4. Selected – þessar eru á óskalistanum!
5. Topshop
6. Accessories
7. H&M
Sólarkveðjur – með von um að sólargeislarnir fari að sýna sig á klakanum góða!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com