Að vera í samstæðum bol og buxum/pilsi getur komið mjög skemmtilega út. Þetta trend er búið að vera svolítið áberandi í sumar en heldur áfram inní haustið.
Þetta er þó svolítið erfið tíska og ekki fyrir alla. Mér finnst koma mjög skemmtilega út að vera í mynstruðum topp og stuttbuxum í sama mynstri. Og helst bert á milli ef þú berð það vel! Líka flott að vera í buxum og jakka í sama mynstri svo eitthvað sé nefnt.
Kíktu á myndirnar hér fyrir neðan…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.