Hvað er hægt að segja annað um D&G en VÁ!
Línan frá þeim fyrir sumarið er skrautleg, falleg, kvenleg og bara Vá Vá Vá
Gaman að sjá mynstrin hjá þeim og litavalið. Sumarið verður greinilega mjög litríkt í ár og mikið um mynstur og skraut. Dolce og Gabbana hafa oft verið brautryðjendur varðandi munstur og liti. Þeir fara oft aðeins lengra en hinir og setja línurnar fyrir næsta árið.
Sjón er sögu ríkari!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.