Sigga og Tímó eru gullsmiðir í hjarta Hafnafjarðar. Þau hanna einna fegurstu skartgripi sem ég hef séð þó víða væri leitað. Sannir fagurkerar.
Í dag er einnig hægt að fá hjá þeim hálskraga úr finnsku refaskinni. Þetta eru skinn í öllum heimsins litum og passa við nákvæmlega allt! Hvort sem þú ert í töffarafílingnum í gallabuxum og bol eða litla svarta kjólnum þá er þetta málið!
Fáðu þér refaskinn í einhverjum flottum lit og dressið er fullkomnað!
Og þetta er ekki bara smart… líka fullkomið fyrir veturinn, mjúkt og hlýtt. Verðið er líka hagstætt, þau eru frá 6500 til 16.500.
Algjörlega sjúklegt!
Dásamleg skinn – mig langar í svona þrjú eða fjögur, já eða þau öll! Sjáðu myndirnar og Facebook síðuna hjá Siggu og Tímó hér.
___________________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.