Burberry Prorsum sýndi haustlínu sína fyrir 2012 núna á dögunum á tískuvikunni í London.
Línan í heild er mjög falleg eins og alltaf hjá Burberry, mikið er um blúndur, leður og rúskinn. Gaman að sjá að rúskinnið er að koma aftur, bæði fíngert rúskinn og eins gróft rúskinn. Jakkarnir eru mjög kvenlegir og fara vel með sixpensurunum. Hanskarnir og töskurnar eru algjörlega gordjöss. Hanskarnir koma í fallegum haustlitum, karrýgulum og rústrauðum. Uppáhaldið mitt eru svörtu leðurhanskarnir og regnhlífarnar, þvílík fegurð.
Algjörlega ómmissandi fyrir haustið!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.