Maður stekkur kannski ekki út í búð og splæsir í eitt par af Louboutin skóm en það er mjög gaman að dást að þeim engu að síður…
…Sumar 2011 línan er lítrík og glitrandi og full af nýjungum þó að klassíkin sé ekki langt undan. Eldrauði sólinn , háglansandi svarta leðrið og himinháu pinnahælarnir. Namms, væri ekki leiðinlegt að eignast eitt par!
Hér fyrir neðan eru nokkur af mínum uppáhalds úr þessari línu, svo er hægt að skoða meira HÉR.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.