Franski skóhönnuðurinn Christian Louboutin er búinn að kynna sumarlínu sína fyrir 2012.
Hún er falleg, einstök og öðruvísi. Hann fékk innblástur frá Spáni og fleirum suðrænum löndum og má sjá það til dæmis á hinum gullfallegu bláu skóm Torero, en þeir minna á nautabana á Spáni. Hællinn á þeim er 15cm takk fyrir sem er fagnaðarerindi fyrir okkur sem erum í minni kantinum. En flestir skórnir í þessari línu eru með hælum sem eru 14-15 cm háir.
Línan er mjög fjölbreytt og notar hann til dæmis perlur, gadda, plexigler og leður í hönnun sinni.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.